[Image]Þegar ég var að vinna á Astro í Austurstrætinu skömmu fyrir síðustu aldamót, var réttur á matseðlinum kallaður Tex Mex kjúklingabringur. Þetta var vinsælasti rétturinn á matseðlinum og seldist í bílförmum. Galdurinn á bak við þennan rétt var marineringin á kjúklingnum.
Tex Mex marinering:3 hvítlauksgeirar2 msk dijonsinnep1 tsk þurrkað coriander1 tsk þurrkað fennel2 msk hunang1 dl appelsínusafi2 dl BBQ sósa2 dl olía Allt nema olía sett í matvinnsluvél og látið vinnast vel saman. Olíu bætt saman við smátt og smátt. Þessi marinering nægir fyrir 8-10 bringur eða meira. Minnkið uppskriftina um helming ef um færri bringur er að ræða. Látið bringurnar liggja í marineringunni í 6 tíma. Grillið bringurnar á vel heitu grilli og pennslið með BBQ sósu. Meðlæti:Mexicó krydduð hrísgrjón með maís og grænmeti. Lárperumauk, salasa sósa og súrður rjómi. Gott salat skemmir ekki.
birtar af Auðunn Sólberg Valsson á 05:09 þann 25. jún. 2010
"Tex Mex Kjúklingabringur a la Astro"
Ein ummæli -
Flottar uppskriftir!! Takk fyrir.
1:42 e.h.