fyrir 4 persónur:
[Image]3 þeytt egg
1 dl mjólk
1 vanilluskaf á hnífsoddi
1 msk hunang
1/2 tsk kanilduft
4 msk kotasæla
4 stk 2.5 sm þykkar brioche eða gott brauð
2 msk smjör til steikingar
2 stk bananar skornir í tvennt og í lengjur
saxaðar ristaðar möndlur
hlynsíróp
Skref 1:
Blandið saman þeyttu eggi, mjólk, vanillu, hunangi og kanil
í skál. Blandið vel saman með gaffli. hellið blöndunni í grunna skál og leggið
brauðið í og látið drekka í sig eggin í um mínutu á hvorri hlið.
Skref 2:
Steikið í smjörinu á pönnu þar til brauðið hefur tekið góðan
lit.
Skref 3:
Setjið brauðið á disk og banana ofaná. Tvær sneiðar á mann.
Toppið með matskeið af kotasælu ásamt hlynsírópi og ristuðum möndlum.
birtar af Auðunn Sólberg Valsson á 06:03 þann 27. jan. 2013
"Frönsk banana og kanil rist með kotasælu og hlynsírópi"
Engin ummæli ennþá. -