Fyrir 4 persónur[Image]Undirbúningur og eldunartími um 40 mínútur Uppskrift:20 stk stórar skelflettar Tígrisrækjur1 tsk fínsaxaður Engifer3 stk saxaðir Hvítlauksgeirar4 msk sæt Chilisósa1 tsk fræhreinsað og saxað rautt ChiliBörkur og safi af einni Sítrónu100 gr blaðlaukur í strimlum1200 ml sjóðandi grænmetis eða kjúklingasoð (vatn og teningar)4-5 stk Saffranþræðir100 ml Extra virgin Ólífuolía100 gr fínt saxaður laukur300 gr Arborio risotto grjónDass sítrónuolíaFerskur Coriander og Graslaukur til skreytinga á disk Aðferð:1. Setjið rækjur í skál ásamt chili, chilisósu, engifer, hvítlauk og um helming af sítrónusafanum. Blandið saman og geymið á meðan risotto er búið til.2. Setjið soð í pott ásamt saffran og látið suðuna koma upp rólega. 3. Hitið olíuna í þykkbotna, víðum potti og svitið laukinn án þess að hann taki lit. Setjið grjónin útí ásamt sítrónuberki og steikið grjónin í nokkrar mínútur.4. Setjið eina ausu af soði útí grjónin og hrærið í með sleif. Þegar soðið er næstum gufað upp, setjið næstu soðausu í, og látið alltaf sjóða í grjónunum á meðan. Haldið þessu áfram þar til grjónin eru orðin soðin eða í um 20 mínútur.5. Takið af hitanum og setjið restina af sítrónusafanum saman við. Haldið heitu á meðan rækjurnar eru steiktar.6. Hitið Wokpönnu eða stóra steikingarpönnu vel. Setjið rækjurnar á pönnuna og steikið í 2-3 mínútur eða þar til rækjurnar verða ljósrauðar og sósan sjóðandi og þykk. Bæðið að síðustu blaðlaukræmum útí.7. Setjið væna ausu af risotto á disk og komið 5 rækjum á mann fyrir á disknum. Skreytið með coriander og graslauk. Framreiðið með góðu brauði. Næringargildi í hverjum skammti:400 kkal5.1 gr fita14.6 gr prótín78.5 gr kolvetni12.6 gr sykur1.9 gr salt
birtar af Auðunn Sólberg Valsson á 06:36 þann 13. feb. 2011
"Sítrónu Risotto með Hvítlaukssteiktum Tígrisrækjum Oriental"
Engin ummæli ennþá. -