Þú mátt gera rúma uppskrift næst þegar þú gerir þetta. Þá fæ ég nokkur brauð!
4:46 e.h.
[Image]Uppskrift: 3 dl Sjóðandi vatn2 dl kartöflumauks-duft1 dl kotasæla2 msk sykur2 msk ólífuolía2 1/2 tsk ger1 tsk salt1 þeytt egg10 dl hveiti2 dl heilhveiti Fyrir penslun:1 þeytt egg1 msk mjólkSesam fræPoppy fræ Setjið kartöflumauksduftið (eins og notað er í kartöflumús) í skál og hellið sjóðandi vatninu saman við. Hrærið saman með sleif og látið kolna niður í 35-40 gráðu hita. Blandið öllu saman við, og hveitinu síðast, smátt og smátt. Hnoðið vel saman og látið hefast í skál undir plastfilmu í 50 mínútur. Takið úr skálinni og vinnið loft úr deiginu með því að hnoða létt á borðinu. Skiptið deiginu í litla bita sem vega 115 gr hver. Látið hvílast undir plastfilmu í 10 mínútur. Hnoðið hvern bita upp í fallega kúlu og komið fyrir á bökunarplötu með smjörpappír undir. Þristið létt á bollurnar með fingrunum til að gera þær flatar. Látið hvílast undir plasti aftur í 10 mínútur. Nótið þrjú mismunadi stóra útstungunarhringi til að mynda far í brauðin. Stingið gætilega níður í hálfar bollurnar -ekki alla leið. Penslið með eggja og mjólkurblöndu og stáið fræjunum yfir. Bakið í 20-25 mínútur við 180 gráðu hita.
birtar af Auðunn Sólberg Valsson á 10:45 þann 11. apr. 2010
"Luxus Hamborgarabrauð"
Ein ummæli -
Þú mátt gera rúma uppskrift næst þegar þú gerir þetta. Þá fæ ég nokkur brauð!
4:46 e.h.