4 harðsoðin egg1 vel þroskað avocado1 tsk tabasco sósa1 tsk sítrónusafisalt og Pipar8 sneiðar parmaskinka
Eggin eru skorin í tvennt með beittum hníf. Takið eggjarauðurnar úr eggjunum og setjið í skál með avocado, tabasco, sítrónusafa og kryddið til með salti og pipar. Skiptið í 8 hluta og setjið í eggin með skeið. Má líka sprauta maukinu í. Leggið snúna parmaskinkusneið yfir. Framreiðið með góðu salati og olíu.
birtar af Auðunn Sólberg Valsson á 12:56 þann 19. okt. 2010
"Fyllt egg með avocado og parmaskinku - Paleo"
Engin ummæli ennþá. -