Hér er frekar óhefðbundið kartöflusalat sem ég hef fengið mjög góð comment á. Mjög létt og einfalt salat. þetta salat má líka framreiða volgt.
Uppskriftin er fyrir 4-6 Innihald:
400 gr soðnar Ratte-kartöflur (Í hýðinu) og kældar 50 gr Ancienne korna-Sinnep 50 ml Extra Virgin Ólífuolía 100 gr saxaður Blaðlaukur eða Vorlaukur 80 gr Rauð paprika skorin í teninga Salt og Pipar
Skerið kartöflurnar niður í sneiðar. Blandið síðan öllu saman og kryddið til með salti og pipar. Framreiðið með köldu eða heitu kjöti, eða fiskréttum.
birtar af Auðunn Sólberg Valsson á 09:00 þann 11. feb. 2008
"Kartöflusalat"
Engin ummæli ennþá. -