[Image]Þessi réttur var á Grískum matseðli sem ég setti saman í tilefni af Grískri menningarviku á veitingastaðnum Café Óperu í febrúar 1998
½ tsk kanelduft ½ tsk turmeric 1 stk kjúklingur (1.5 kg) 30 ml olífuolía 1 stór laukur sneiddur þunnt 1 msk fínsöxuð engiferrót 600 ml kjúklingasoð 2 stk sítrónur, skornar í báta og í tvennt 75 gr góðar ólífur 15 ml tært hunang 4 msk saxað ferskt koriander Salt og pipar
1- Hitið ofninn í 190 gráður. Blandið saman í skál turmeric, kanel, salti og pipar og nuddið kjúklingin jafnt upp úr kryddblöndunni.
2- Hitið olíuna í stórum potti eða á stórri pönnu og brúnið kjúklingin jafnt á öllum hliðum. Færið kjúklingin upp á ofnfast fat.
3- Bætið lauknum á pönnuna og steikið í 3 mínútur. Setjið saxað engifer í pönnuna ásamt kjúklingasoði, látið sjóða við vægan hita. Hellið yfir kjúklinginn og lokið forminu með t.d. álpappír. Bakið í 30 mínútur.
4- Takið úr ofninum og bætið sítrónum, ólífum og hunangi saman við, bakið áfram í 30 mínútur loklaust.
5- Að bökun lokinni skal strá söxuðu kóriander yfir og smakka réttin til. Skreytt með kórianderlaufum og framreitt strax.
birtar af Auðunn Sólberg Valsson á 05:27 þann 11. des. 2007
"Grískur Sítrónukjúklingur með Ólífum og Koriander"
Engin ummæli ennþá. -