200 gr laxaflak – hreinsað 150 gr hvítur fiskur 1 msk soyasósa 1 tsk saxaður hvítlaukur 2 egg 4 msk hveiti 100 ml hvítvín eða mysa 1 tsk dill 1 tsk fennelduft 1 tsk karrý 1 tsk paprikuduft ½ tsk timian 100 ml rjómi Salt og pipar úr kvörn
Skerið allan fisk í litla bita og marinerið í hvítlauk og kryddi í klukkustund. Hellið hvítvíni, eggjum saman við og blandið saman. Setjið í matvinnskuvél og látið snúast í stutta stund. Bætið hveiti saman við og hellið rjóma í smátt og smátt. Mótið í litlar fallegar bollur með skeið og steikið í smjöri við vægan hita. Framreiðið með skelfisksósu, brauði og hrísgrjónum.
birtar af Auðunn Sólberg Valsson á 04:37 þann 6. feb. 2008
"Lúxus Laxabollur"
Engin ummæli ennþá. -