Passar í einn millidjúpann Gastróbakka. Helmingið uppskriftina til að baka í heimilisskúffu.
Það má segja að þessi kaka sé svona lúxus-skúffukaka.
500 gr ósaltað smjör 10 egg 300 gr sykur 100 gr púðusykur 8 tsk lyftiduft 6 tsk vanillusykur 6 dl hveiti 4 dl kakó 300 gr dökkt, rifið súkkulaði
1 kg frosin blönduð ber 500 gr flórsykur
Blandið saman berjunum við flórsykurinn og látið standa við stofuhita í 3-4 klst. Framreiðið með kökunni.
Bræðið smjörið rólega. Þeytið saman egg, vanillusykur, púðusykur og sykur í 10 mínútur. Hrærið smjörið rólega saman við eggjablönduna. Sigtið hveiti, kakó og lyfiduft og blandið rólega saman við deigið ásamt helming af súkkulaði með sleif eða sleikju. Hellið helming deigsins í gastróbakkann (Smjörpappír undir). Stráið seinni helmings súkkulaðis jafnt yfir og hellið síðan rest af deiginu þar yfir. Hitið ofninn í 180 gráður í 5 mínútur og lækkið síðan í ofninum í 150 gráður og setjið kökuna í ofninn. Bakið á miðlungs viftuhraða í 35 mínútur. Kælið og framreiðið. Þessa köku má líka baka daginn áður.
birtar af Auðunn Sólberg Valsson á 01:18 þann 17. des. 2008
"Súkkulaðikaka með berja coulis"
Engin ummæli ennþá. -