Sósan: 800 gr niðursoðnir tómatar -Kurlaðir 3 hvítlauksgeirar -Fínsaxaðir 50 ml ólífuolía 100 gr fínsaxaður laukur 1 fersk blóðbergs-grein eða ein tsk af þurrkuðu 100 ml vatn eða grænmetissoð Salt og pipar
Hitið hvítlaukinn og laukinn í olíunni stutta stund. Setjið blóðberg, vatn, tómata og kryddið til með salti og pipar. Látið sjóða rólega í 30 mínútur. Takið til hliðar.
Lasagna: 100 gr rauðlaukur í sneiðum 200 gr gulrætur í löngum sneiðum 150 gr kúrbítur í löngum sneiðum 300 gr spergilkál, skorið í litla knúppa 200 gr rauð paprika skorinn í sneiðar 50 gr ristaðar casew hnetur 500 gr kotasæla 6-8 lasagnablöð 100 gr rifinn parmesanostur 200 gr rifinn ostur
Léttsjóðið grænmetið í saltvatni, kælið og þerrið. Gulræturnar þurfa lengstu suðuna. Í ofnfast form er lagt til skiptis grænmeti, sósa, lasagnablöð og kotasæla. Stað er parmesan á milli. Rifinn ostur efst. Látið standa við stofuhita í klukkustund. Bakið í ofni við 180 gráður í 40 mínútur eða þar til osturinn hefur tekið góðan lit. Framreiðið með salati og góðu brauði.
birtar af Auðunn Sólberg Valsson á 13:44 þann 16. maí 2008
"Grænmetis Lasagna"
Engin ummæli ennþá. -