200 gr sveppir í bitum 50 gr smjör Svartur mulinn pipar 1 msk dijonsinnep 250 ml rjómi 150 ml kjötsoð eða teningur og vatn Salt og hvítur pipar
Sveppirnir eru steiktir vel í smjörinu og kryddað til með svörtum pipar. Öllu öðru er blandað saman við og látið sjóða rólega í 20-30 mínútur. Kryddað til og þykkt ef þurfa þykir með smjörbollu (smjör og hveiti).
birtar af Auðunn Sólberg Valsson á 06:19 þann 18. jún. 2009
"Sveppasósa"
Engin ummæli ennþá. -