Þessa uppskrift notaði ég með frábærum árangri í veiðihúsinu að Kjarrá í þverárhlíð. Frábær kaka og auðvelt að búa til. Hentar fullkomlega sem eftirréttur.
Súkkulaðifrauðið: 4 eggjarauður 75 gr sykur 75 ml vatn 300 gr brætt suðusúkkulaði 250 ml hálfþeyttur rjómi
Myntufrauðið: 250 ml rjómi 4 stk eggjarauður 75 gr sykur 6 stk matarlímsblöð 300 ml hálfþeyttur rjómi 3 msk myntulíkjör (Crème de Menthe)
Súkkulaðibotn: 2 egg og 4 eggjarauður 200 gr flórsykur 25 gr hveiti 25 gr kartöflumjöl 25 gr kakóduft
Aðferð súkkulaðibotn: 1-Blandið saman kartöflumjöli, hveiti og kakódufti og sigtið. 2-þeytið saman flórsykri og eggjum yfir hita, þar til hræran þykknar. 3-Bætið þurrefnum saman við. 4-Setjið í smurt form og bakið 18 mín við 180 gráðu hita. 5-Bregðið undir salamander í restina ef með þarf -kælið.
Myntumousse: 1-Sjóðið upp á myntu og rjóma og kælið örlítið. 2-Legerið sykur og eggjarauður saman þar til hræran er orðin frekar þykk. 3-Hellið þá smátt og smátt rjómanum saman við. 4-Leggið matarlímið í kalt vatn, kreystið og leysið upp í rjómablöndunni. 5-Kælið hræruna niður fyrir 40 gráður og blandið þeyttum rjóma saman við. 6-Hellið yfir súkkulaðibotnin og kælið vel áður en súkkulaðilagið er sett ofaná.
Súkkulaðimousse: 1-Sjóðið saman vatn og sykur í þunnt síróp. 2-Legerið eggjarauður í sírópinu þar til hræran fer að flykkna. 3-Bætið súkkulaðinu saman við og kælið örlítið. 4-Setjið þeyttan rjóma saman við síðast og setjið ofaná myntulagið. 5-Kælið vel og stráið kakódufti yfir kökuna.
birtar af Auðunn Sólberg Valsson á 12:30 þann 5. des. 2007
"Súkkulaði og Myntukaka"
Engin ummæli ennþá. -