[Image]Þetta er mjög kraftmikil súpa sem gott er að ylja sér við á köldum vetrarkvöldum. Mjög sniðug í veislur sem sjálfstæður réttur eða aðalréttur. Fékk þessa hjá Agnesi á Selfossi. Breytti og staðfærði að kenjum kokksins.
400 gr soðnar kjúklingabringur í teningum 200 gr saxaður laukur 3 fínsaxaðir hvítlauksgeirar 1 grænn chilipipar fínsaxaður 2 rauður chili fínsaxaður 100 gr mais 100 gr soðnar nýrnabaunir 1 lítri tómatsafi 800 gr niðursoðnir tómatar í bitum 600 ml kjúklingasoð 1 búnt saxaður ferskur coriander ½ tsk chilipiparduft ½ tsk cayennapiparduft
Svitið hvítlaukinn, chilipiparinn og laukinn í dálítilli olíu. Öllum vökva bætt sman við og soðið rólega saman í 20-30 mínútur. Setjið kjúkling, mais og nýrnabaunir í súpuna. Smakkið til og bætið við chili eða kjötkrafti ef þurfa þykir. Súpan á að vera sterk og kraftmikil.
Meðlæti: 200 gr rifinn ostur 200 ml sýrður rjómi 200 ml Guacamole Nachos flögur Brauð og olífuolíaSkammtið súpuna í skál fyrir hvern og einn og setið meðlætið útí. Snakkið og rifinn ost efst.
birtar af Auðunn Sólberg Valsson á 01:03 þann 10. des. 2008
"Mexikönsk Tómatsúpa með Chili og Kjúkling"
Engin ummæli ennþá. -