[Image]Framreiddur með Grænmetis-spjóti og chili-mangósósu
Fyrir 4
600 g snyrt laxaflak 2-3 msk mangó chutney Salt
Marinering: 2 msk dijonsinnep 2 hvítlauksgeirar 100 ml ólífuolía Svartur pipar 1 lime – safinn og rifinn börkur
Grænmetisspjót: 100 gr zukkini 100 gr rauð paprika 100 gr rauðlaukur 50 gr sveppir 8 smátómatar
Mangósósa: 200 ml mangómauk (Mango Glaze) 1 msk saxað coriander 1 stk chili-pipar 1 lime - safinn Salt Pipar
Aðferð: Byrjið á þvi að marinera laxinn. Flakið er skorið í 4 jöfn stykki. Saxið hvítlaukinn fínt og blandið saman við ólífuolíuna. Smyrjið sinnepinu jafnt á laxastykkin og kryddið til með pipar. Leggið á fat og hellið olíunni yfir. Látið standa á köldum stað í klukkustund eða meira. Laxinn er síðan saltaður og grillaður á vel heitu grilli í um það bil 8 mínútur á hvorri hlið. Í restina skal hann pennslaður með mango chutney. Skerið grænmetið í fallega, jafna bita og þræðið upp á spjót. Grillið með laxinum í nokkrar mínútur. Kryddið með salti og pipar.
Mangósósa: Hreinsið fræ úr piparbelgnum og saxið mjög fínt. Hitið í olíu ásamt coriander. Setjið mauk saman við ásamt limesafa og sjóðið stutta stund. Kryddið til með salti og pipar. Með réttinum má framreiða ferskt salat og brauð eða bakaða kartöflu fyrir þá sem það vilja.
birtar af Auðunn Sólberg Valsson á 06:45 þann 15. júl. 2008
"Sinneps og Hvítlaukslegin Lax"
2 Ummæli -
Var bara að velta fyrir mér hvort að mangó sósan væri góð með cous cous og Tígrísrækjum?
12:05 e.h.
Örugglega
7:59 f.h.