[Image]500 gr laukur í sneiðum 2 fínsaxaðir hvítlauksgeirar 50 gr smjör 2 msk tómatmauk 1 tsk paprikuduft 3 msk Worchestershire sósa 50 gr hveiti Salt Pipar 1.2 lítri ljóst kjötsoð eða vatn og kjötkraftur Ristaðar brauðsneiðar í stórum teningum Rifinn ostur
Svitið hvítlaukinn og laukinn án þess að brúna hann í smjörinu. Bætið tómatmauki og worchestershire sósu saman við. Kryddið til með salti og pipar. Takið af hitanum og hrærið hveitið rösklega saman við. Bætið vatni saman við og leysið upp í lauk/hveiti líkt og smjörbolla. Látið suðuna koma upp og látið sjóða rólega í klukkustund. Smakkið til og setjið í skálar. Setjið c.a. eina brauðsneið í hverja skál og rifinn ost yfir. Gratinerið í ofni stutta stund eða þar til osturinn hefur tekið lit.
birtar af Auðunn Sólberg Valsson á 02:18 þann 3. mar. 2009
"Klassísk Frönsk Lauksúpa"
Engin ummæli ennþá. -