[Image] Þetta er frábær, léttur réttur t.d í hádeginu með góðu salati. Franskara en allt sem franskt er. Deig:250 gr hveiti1 tsk salt150 gr kalt smjör1 eggjarauða5o ml kalt vatn Hnoðað saman og hvílt í kæli í að minnsta kosti 2 tíma. Fletjið síðan þunnt út og komið fyrir í springformi. Látið deigið ná c.a. 2-3 cm upp á hliðar formsins. Kælið. Fylling:125 gr reykt flesk í bitum (blanserað stutta stund)2 litlir laukar í sneiðum (blanserað stutta stund)250 gr spergilkál í bitum (Soðið í 3 mínútur í saltvatni)60 gr rifinn ostur4-5 dl mjólkursósa bætt með rjóma (Þykkt mjólk og rjómi með smjörbollu)3 eggjarauður3 eggMúskat, salt og pipar Látið allt vatn renna vel af káli, lauk og fleski, og setjið í bökuformið. Hrærið egg og ost út í kælda sósuna og hellið yfir fyllinguna. Bakið við 190 gráður í 35-55 mínútur allt eftir stærð formsins og þykkt bökunnar.
birtar af Auðunn Sólberg Valsson á 04:49 þann 23. feb. 2007
"Quiche Lorraine með Spergilkáli og lauk"
Ein ummæli -
Endilega haltu áfram
4:01 f.h.