Þessi kaka er mjög einföld, en merkilega ljúffeng sem desert eða með góðum kaffibolla. Þessa köku notaði ég mikið þegar ég var í veiðihúsinu að Kjarrá í Þverárhlíð. Ég lagaði hana alltaf með 2ja daga fyrirvara því mér fannst hún eiginlega betri þá. Ef ég man rétt þá gaf ég bláberjasorbet með.
150 ml vatn 100 ml glúkósi eða sykursíróp 4 blöð matarlím bleytt upp í köldu vatni 5oo gr dökkt súkkulaði 1 ltr léttþeyttur rjómi Kakóduft Þunnur svampbotn Sterkt kaffi Jarðaberjamauk
Bakaður er þunnur svampbotn, hann settur í botn á springformi. bleytið upp með kaffinu og smyrjið létt yfir botninn með jarðaberjamaukinu. Hitið saman vatn, glúkósa og matarlím. Brytjið niður súkkulaðið og bræðið saman við. Kælið örlítið og blandið rjómanum saman við og hellið í formið. Kælið vel og stráið kakói yfir.
birtar af Auðunn Sólberg Valsson á 06:54 þann 22. feb. 2007
"Súkkulaði-trufflukaka"
Engin ummæli ennþá. -