Ég er búinn að vera að hugsa mikið um að gera grænmetislasagna. Ég er vanur að nota kotasælu, parmesan, tómat og spínatpastablöð sem grunn. Þá bæti ég við meira og minna því grænmeti sem ég á - helst linsubaunir, eggaldin, zúkíní, sveppum, brokkolí o.fl.
1 pk núðlur 2 ds kókosmjólk 3 msk olía 4 msk sweet chili sósa 1 saxað hvítlauksrif 2 msk soya sósa 2 litlar gulrætur í strimlum 100 gr hvítkál í srimlum 100 gr vorlaukur eða blaðlaukur í strimlum 2 msk rautt karrý 3 soðnar kjúklingabringur í strimlum
Sjóðið núðlurnar í 5 mínútur og kælið í miklu af köldu vatni - sigtið. Svitið grænmetið í olíunni með karrý og hvítlauk. Setjið kókosmjólk útí ásamt soya og sweet chili. Sjóðið stutta stund eða þar til grænmetið er orðið meirt. Setjið núðlur og kjúkling útí og sjóðið stutta stund. Þennan rétt er upplagt að laga í wok-pönnu.
birtar af Auðunn Sólberg Valsson á 07:57 þann 23. maí 2006
"Núðlur með kókos og rauðu karrý"
2 Ummæli -
Ég er búinn að vera að hugsa mikið um að gera grænmetislasagna. Ég er vanur að nota kotasælu, parmesan, tómat og spínatpastablöð sem grunn. Þá bæti ég við meira og minna því grænmeti sem ég á - helst linsubaunir, eggaldin, zúkíní, sveppum, brokkolí o.fl.
Hvernig gerir meistararnir svona?
1:38 e.h.
Ég get ekki séð annað en að þú sért á réttri leið með þetta grænmetis-lasagna. Vantar kannski grænmeti eins og gulrætur, papriku og lauk.
6:02 f.h.