[Image]Franska nafnið á réttinum er: "Terrine D´agneau aux courgettes et tomates confites"
1 kg Fituhreinsuð Lambafille 2 kg Kúrbítur 1 kg Stórir tómatar 200 gr Saxaður laukur 10 bl Matarlím 1 dl Extra virgin Ólífuolía Salt og pipar 5 stk Basil lauf
Aðferð: 1-Kryddið og steikið Lambafilletið rósrautt í miðju, á pönnu og kælið. 2-Skerið kúrbítinn í þykkar sneiðar og síðan í fernt. 3-Setjið ólifuolíuna í pott og setjið á vægan hita. 4-Setjið kúrbítin í pottinn og sjóðið við vægan hita í 40-60 mínútur. 5-Maukið tómatana í matvinnsluvél og bætið í pottinn. 6-Kryddið til með salti og pipar ásamt basil-laufum. 7-Sjóðið saman í 15 mínútur og bætið matarlími saman við. 8-Kælið fyllinguna örlítið og smyrjið terrine form með olíu. 9-Setjið fyllingu í botninn á forminu og síðan kjöt ofaná. 10-Endurtakið og endið á fyllingunni. 11-Kælið vel og skerið í þykkar sneiðar, eina á mann. 12-Framreitt með góðu brauði ásamt salati og olíu.
birtar af Auðunn Sólberg Valsson á 02:30 þann 9. feb. 2006
"Lambaterrine með Kúrbít og Tómatconfit"
Engin ummæli ennþá. -