250 gr skötuselshali 250 gr karfi 250 gr langa eða steinbítur 250 gr stór hörpuskel 250 gr pillaður humar eða tígrisrækjur
200 gr miðhluti af fallegum blaðlauk 250 ml gott, tært fiskisoð 100 ml ólífuolía 4 hvítlauksgeirar - marðir 1 fennel - þunnt sneiddur 1 laukur - þunnt sneiddur 1 gulrót - þunnt sneidd 2 vel rauðir tómatar 10 gr saffrran 2 greinar ferskt blóðberg 10 gr salt cayennapipar á hnífsoddi 6 stykki matarlímsblöð
Losið sundur blaðlaukinn og blancerið og snöggkælið. Notið blaðlaukinn til að klæða formið að innan. Svitið golrætur, rest að blaðlauk, hvítlauk, lauk og fennel í 7 mínútur, í olíunni. Bætið fínsöxuðum tómötum við og eldið áfram í 5 mínútur. Hellið fissoðinu í pottinn ásamt saffran, blóðbergi salti og cayennapipar. látið sjóða rólega og bætið skötusel útí. Látið sjóða rólega í 2 mínútur og bætið rest af fisk saman við - humar í rerstina. Látið sjóða áfram í 4 mínútur. Færið fiskinn upp úr og kælið. lagið hlaup úr soðinu. Raðið fisknum og grænmetinu fallega í terrine-form og hellið hlaupi yfir. Hyljið með blaðlauk og kælið vel í 12 klst. Framreitt með Rouille á brauði.
birtar af Auðunn Sólberg Valsson á 09:20 þann 7. feb. 2006
"Bouillabaisse Terrine með Rouille sósu"
Engin ummæli ennþá. -