[Image]300 gr hreinsaður skötuselshali 300 gr laxaflak 3 lime - safinn og julienne 1 laukur - fínsaxaður 100 gr pimento pipar - niðurlagður 150 ml gott fiskiaspic Basillauf Corianderlauf Dillgreinar 2 negulnaglar - malaðir Nokkur rósapiparkorn - mulin Muskathneta - möluð Salt og pipar
Sneiðið fiskinn í þunnar sneiðar á fat eða disk. Hellið limesafa jafnt yfir ásamt julienne. Stráið lauk yfir og kryddið með muskati, rósapipar, negulnöglum, salti og pipar. Leggið plastfilmu yfir og latið standa í kæli í 30 mínútur. Klæðið terrineform með pimento-pipar og leggið lax og skötusel til skiptis í formið. Setjið kryddjurta-lauf á milli. Hellið hlaupi alltaf á milli einnig. Gæti verið sniðugt að kæla formið eftir hvert lag (láta hlaupið stífna). Kælið síðan vel í 4-6 klukkustundir hið minnsta. framreitt með góðu brauði og vinaigrette.
birtar af Auðunn Sólberg Valsson á 08:56 þann 7. feb. 2006
"Marinerað Laxa og Skötusels Terrine"
Engin ummæli ennþá. -