[Image]Hvað er betra í skammdeginu en orkurík, bragðmikil og framandi mauksúpa. Þessi súpa er alveg frábær:
Súpan fyrir 4: 400 gr kartöflur 2 stk blaðlaukar, hvíti hlutinn 1 msk smjör 2 msk rifið engifer 800 ml kjúklingasoð 50 gr þurrkaðar rís-núðlur 250 ml rjómi 1/2 lime-safi og rifinn börkurinn 1/2 tsk sambal oelek (thai-krydd) Saxaður graslaukur til skreytinga
Chilismjör á brauðið: 1/2 tsk sítrónusafi 1 tsk púðusykur 25 gr smjör 1/2 tsk sambal oelek (thai-krydd)
Afhýðið kartöflurnar, skerið í þunnar skífur og skolið upp úr köldu vatni. Látið vatnið renna vel af. Saxið blaðlaukinn og svitið í smjöri, í stórum potti. Bætið kartöflum, engifer og kjúklingasoði saman við. Látið sjóða rólega í 25 mínútur. Sjóðið núðlurnar samhvæmt leiðbeiningum á pakkanum. Maukið grænmetið í súpunni með töfrasprota eða í matvinnsluvél. Bætið síðan rjóma, lime og thai-kryddi saman við. Saltið ef þurfa þykir. Skiptið núðlunum í 4 skálar. Látið súpuna sjóða og hellið yfir núðlurnar og stráið graslauk yfir.
Chilismjör: Blandið öllu saman og smyrjið þykkar brauðsneiðar með smjörinu. Ristið gullinbrúnt í ofni.
birtar af Auðunn Sólberg Valsson á 01:30 þann 25. jan. 2006
"Thai-súpa með chilibrauði"
Engin ummæli ennþá. -