þetta er dálítið sérstakur eftirréttur en mjög góður.
Innihald:
375 ml Rauðvín 100 gr pistasíuhnetur 50 gr saxaðar valhnetur 50 gr sykur 60 ml brandy 600 gr gráfíkjur 12 stk matarlímsblöð Safi og börkur af 2 appelsínum
Aðferð:
1. Hreinsið gráfíkjurnar með því að skera stilkinn af og skerið þær síðan í tvennt. 2. Setjið allt saman í pott nema matarlímið. 3. Sjóðið í 10 mín og takið af hitanum. 4. Bleytið upp matarlímið og bætið útí. 5. Klæðið form með plastfilmu og setjið gráfíkjurnar í. 6. Kælið í 10 klst. og framreiðið með Sabayonnesósu.
birtar af Auðunn Sólberg Valsson á 06:51 þann 22. des. 2005
"Gráfíkjuterrine"
Engin ummæli ennþá. -