[Image]Þessi uppskrift er hefðbundin og auðveld í framkvæmd.
4-5 kg Kalkúnn 350 gr grísa eða kálfahakk 550 gr laukur 3 stórar gulrætur 1 stk græn paprika 3 stk sellery stilkar 2 hvítlauksgeirar 200 gr fransbrauð 300 ml ljóst kjötsoð 50 gr smjör 4 msk olía örl rifin múskathneta salt og pipar 50 gr söxuð salvía
1-Saxið laukinn og svitið í 10 gr af smjöri og einni msk af olíu án þess að hann taki lit. 2-Skerið brauðið í teninga og ristið á pönnu í 2 msk af olíunni - kælið. 3-Setjið ofninn á 210 gráður. Blandið saman kjöthakki, lauk, brauði og kryddið með múskati, salviu, salti og pipar. Blandið vel saman. 4-Afhýðið gulræturnar og skerið í sneiðar. Skerið sellerýið niður í teninga. Forsjóðið síðan gulrætur og sellerý í saltvatni (1-2 mín) kælið og þerrið. Skerið paprikuna niður í teninga. Blandið síðan grænmetinu saman við fyllinguna. 5-Kryddið kalkúninn með salti og pipar bæði að innan og utan. Komið fyllingunni fyrir og setjið í ofnskúffu eða eldfast fat. Setjið hvítlaukinn, hálsinn og hjartað með kalkúninum í ofnskúffuna. 6-Steikið kalkúninn fyrst í 50 mínútur við 210 gráður og lækkið svo hitann niður í 180 gráður og steikið áfram í c.a. 2 tíma allt eftir stærð kalkúnsins. Hitið saman smjör og kjötsoð og hellið örlitlu af því yfir fuglinn á meðan steikingu stendur. Ef kalkúnninn fer að brúnast mjög mikið í steikingunni er gott að setja álpappír yfir þá staði, til að koma í veg fyrir að hann brenni. 7-Þegar steikingu er lokið skal færa fuglinn yfir á fat og nota safann og það sem eftir er í steikingarfatinu í sósuna. Bætið örlitlu af vatni saman við ef þurfa þykir. Bætið sósuna með rjóma og þykkið með maisenamjöli. Kryddið til með salti og pipar eða kjötkrafti og framreiðið með kalkúninum. 8-Gott meðlæti er t.d. fyllt bökuð epli, waldorff-salat, steikt grænmeti og steiktar kartöflur.
birtar af Auðunn Sólberg Valsson á 00:52 þann 11. des. 2005
"Fylltur Jólakalkúnn að enskum ætti"
Engin ummæli ennþá. -