Þennan kjúklingarétt var ég með á grískum matseðli sem ég setti saman fyrir Gríska viku á Café Óperu í febrúar 1998. Þessi er bara skrambi góður.
Þetta er uppskrift fyrir 4-6 manns: 1/2 tsk kanilduft 1/2 tsk turmeric 1 stór eða 2 litlir kjúklingar 30 ml olía 1 stór laukur sneiddur þunnt 1 msk fersk rifinn engiferrót 600 ml kjúklingasoð 2 stk sítrónur skornar í báta og síðan í tvennt 75 gr grænar góðar ólífur 15 ml tært hunang Salt og pipar Korianderlauf til skreytinga
1- Hitið ofninn í 190 gráður. Blandið saman í skál turmeric, kanel, salti og pipar og nuddið kjúklingin jafnt upp úr kryddblöndunni.
2- Hitið olíuna í stórum potti eða á stórri pönnu og brúnið kjúklingin jafnt á öllum hliðum. Færið kjúklingin upp á ofnfast fat.
3- Bætið lauknum á pönnuna og steikið í 3 mínútur. Setjið saxað engifer í pönnuna ásamt kjúklingasoði, látið sjóða við vægan hita. Hellið yfir kjúklinginn og lokið forminu með t.d. álpappír. Bakið í 30 mínútur eða þar til kjúklingurinn er fulleldaður.
4- Takið úr ofninum og bætið sítrónum, ólífum og hunangi saman við, bakið áfram í 30 mínútur með engu loki eða álpappír yfir.
5- Að bökun lokinni skal strá söxuðu kóriander yfir og smakka réttin til. Skreytt með kórianderlaufum og framreitt strax. Hentugt meðlæti er t.d. góð Jógúrtsósa, Grískt salat og Ólífubrauð.
birtar af Auðunn Sólberg Valsson á 00:37 þann 11. des. 2005
"Sítrónukjúklingur með Ólífum og Kóriander"
Engin ummæli ennþá. -