[Image]Þessi uppskrift hefur fylgt fjölskyldunni á aðventunni, undanfarnar þrjár kynslóðir að minnsta kosti. Fyrir mér eru þessar kökur, bragð jólanna.
Uppskriftin: 400 gr smjör 200 gr púðusykur 200 gr sykur 500 gr hveiti 2 egg 2 tsk lyftiduft 2 tsk matarsódi 1 bolli muldar möndlur 150 gr suðusúkkulaði í bitum 1/2 tsk vanillusykur
Allt hrært saman og látið hvílast í nokkrar klukkustundir í kæli. Mótað í litlar kúlur og sett á bökunarplötu. Hafið gott bil á milli. Ýtið létt á kúlurnar með gaffli. Bakið við 180 gráður fallega brúnar.
birtar af Auðunn Sólberg Valsson á 13:51 þann 10. des. 2005
"Súkkulaðibitakökur með möndlum"
Engin ummæli ennþá. -