2 meðalstór flök reykt Ýsa 5 stk vorlaukur 2 meðal laukar saxaðir 600 gr soðnar kartöflur í teningum 200 ml mjólk 3 hvítlauksgeirar saxaðir 200 ml rjómi Salt Pipar 100 gr rifinn parmesan 100 gr rifinn ostur
Beinhreinsið ýsuna og komið fyrir á víðri pönnu. Þvoið vorlaukinn og saxið gróft. Setjið vorlaukinn, laukinn og hvítlaukinn yfir fiskinn og hellið mjólkinni yfir. Sjóðið rólega undir loki í 10 mínútur. Kælið örlítið. Þrystið kartöflunum í gegnum sigti. Sjóðið rjómann niður um 1/3 og blandið saman við kartöflurnar. Hlutið fiskinn gróft niður og balndið saman við kartöflurnar ásamt lauknum. Notið vökvann af pönnunni til að þynna hræruna ef þörf er á. Kryddið til með salti og pipar. Setjið hræruna í eldfast mót og stráið ostinum yfir. Gratinerið í 15-18 mínútur við 180 gráðu hita. Framreitt með brauði og góðu fersku salati.
birtar af Auðunn Sólberg Valsson á 04:12 þann 14. okt. 2005
"Kartöflu og Ýsubakstur"
Engin ummæli ennþá. -