[Image]750 ml Mjólk 2 söxuð hvítlauksrif 1 tsk turmeric 1 tsk cummin (ekki malað) 1 stórt blómkálshöfuð 4 vorlaukar í bitum 1 msk saxað engifer salt pipar 50 gr Stökksteiktir baconteningar 4 þykkar sneiðar ciabatta brauð 50 gr rifinn ferskur parmesan 30 ml extra virgin ólífuolía
Setjið mjólk, hvítlauk, krydd, engifer, lauk og blómkál saman í pott og sjóðið rólega saman í 10 mínútur. Maukið saman með mauksprota eða í matvinnsluvél. Skerið brauðið í grófa teninga og veltið upp úr parmesan og olíu. Setjið á smjörpappír í ofnskúffu og ristið í ofni stutta stund eða þartil brauðið er orðið fallega ristað. Framreiðið súpuna í fallegum skálum og stráið brauði og baconi yfir.
birtar af Auðunn Sólberg Valsson á 04:54 þann 13. okt. 2005
"Austurlensk Blómkálssúpa með cummin og turmeric"
Engin ummæli ennþá. -