Rommtíglar: 100 gr smjör 2 stk egg 12 gr þurrger 1 stk sítróna - börkurinn rifinn smátt 20 gr flórsykur 250 gr hveiti Sletta romm
Jarðaberjacompot: 450 gr jarðaber 25 gr flórsykur 5 ml vatn
Aðferð: 1 Blandið saman flórsykri og hveiti í skál. 2 Leysið upp gerið í volgu vatni og blandið saman við. 3 Rífið börkinn af sítrónunni mjög fínt og bætið í skálina. 4 Blandið eggi saman við ásamt rommi og smjörinu-Athugið að smjörið verður að vera mjúkt eða stofuheitt. 5 Hnoðið saman vel og fletjið út. 6 Skerið í tígla með kleinujárni og djúpsteikið. 7 Stráð flórsykri og framreitt með jarðaberjacompot og ís. Ath að deigið er hægt að frysta formað í tígla og djúpsteikja síðan.
Jarðaberjacompot: 1 Maukið helming af jarðaberjunum, sjóðið ásamt vatni og flórsykri í síróp-sigtið og kælið örlítið. 2 Setjið restina af jarðaberjunum út í og kælið. Notið smá jarðaber frekar en stór í compotið.
birtar af Auðunn Sólberg Valsson á 13:00 þann 30. sep. 2005
"Djúpsteiktir Rommtíglar og Jarðaberjacompott"
Engin ummæli ennþá. -