Þessi kaka var á matseðlinum í Grillinu á Hótel Sögu þegar ég vann þar. Mjög góð kaka og er best volg. Ég setti þessa uppskrift saman úr uppskrift í uppskriftarbæklingi sem fylgdi Braun matvinnsluvél. Deig: 500 gr hveiti 375 gr smjör 175 gr flórsykur ½ egg
Fylling: 50 gr smjör 250 ml rjómi 50 gr hunang 400 gr ljóst síróp 500 gr möndluflögur eða spænir (splitter)
Deig: 1-Hnoðið öllu saman og hvílið í kæli í 30 mín. 2- Fletjið út með kefli og setjið í lausbotna form. 3-Bakið fyrst í 10 mínútur við 150 gráður með smjörpappír og baunir sem ok. 4-Bakið síðan í 15 mín án pappírs og bauna við 120 gráður. Fylling: 1-Blandið öllu saman í pott, nema möndlum og sjóðið í karamellu. Karamellan verður að vera þykk. 2-Setjið möndlurnar í og veltið þeim saman við karamelluna stutta stund yfir hitanum- fyllið botnana. 3-Rétt fyrir framreiðslu skal bregða kökunum undir grill og gefa þeim fallegan gljáa. Framreitt með rjóma. Kakan er dálítið sæt þannig að allt það meðlæti sem inniheldur sykur hentar ekki.
birtar af Auðunn Sólberg Valsson á 08:43 þann 29. sep. 2005
"Dönsk Möndlukaka"
Engin ummæli ennþá. -