[Image]Fullkominn sítrónuunaður. Franskara getur það ekki verið. þessi uppskrift er frá MPW.
1 kg Hveiti 350 gr Flórsykur 500 gr Smjör Börkur af tvem sítrónum í julienne Skaf af einni vanillustöng 2 stk Egg
Fylling: 18 stk Egg 800 gr Flórsykur 10 stk Egg 500 ml Rjómi
1-Hitið ofn í 180 gráður, blandið saman hveiti, smjöri og flórsykri.
2-Setjið sítrónubörkinn í ásamt innan úr vanillustönginni.
3-Þeytið eggin saman og bætið í. Hnoðið vel saman og vefjið í plastfilmu og geymið í kæli í um 30 mínútur.
4-Fletjið út deigið nægilega stórt til að passi í formið sem nota skal. Þrystið deiginu jafnt upp kantana á forminu. Skerið ekki aukadeig sem slútir út fyrir formið fyrr en eftir bakstur. Setjið smjörpappír ofaná deigið og setji bökunarbaunir eða linsubaunir sem ok við baksturinn.
5-Bakið í 10 mín, fjarlægið baunirnar og smjörpappírinn og skerið burt auka deig. Bakið aftur í 10 mín og takið úr ofninum.
6-Þeytið saman egg, flórsykur, sítrónusafa og sítrónubörk. Bætið rjómanum að síðustu í.
7-Lækkið hitan í ofninum í 120 gráður. Hellið fyllingunni í heitan botninn og bakið í 30 mín.
8-Rétt fyrir framreiðslu skal strá kökuna með flórsykri og gljá undir vel heitu grilli. Skerið í 8 sneiðar og framreiðið með t.d. ís eða sorbet.
birtar af Auðunn Sólberg Valsson á 08:19 þann 29. sep. 2005
"Sítrónutart"
Engin ummæli ennþá. -