300 gr laxastykki 100 gr reyktur lax 2 msk sýrður rjómi 2 msk saxaður graslaukur 2 msk saxaður laukur svartur pipar úr kvörn
Tómatolía: 1 dl tómatsafi 2 msk hvítvínsedik 3 msk ólífuolía 1 msk saxaður laukur salt svartur pipar úr kvörn
Hunangslegnar gúrkur: 100 gr gúrkur-flysjaðar og kjarnhreinsaðar 2 msk hunang 1 msk hvítvínsedik salt og hvítur pipar 1 msk ólífuolía
til skreytinga: salat og söltuð laxahrogn
Aðferð: Saxið laxinn fínt og blandið sýrðum rjóma, graslauk og lauk saman við. Kryddið til með pipar. Mótið í fjóra bauta. Leggið á miðju disks. Blandið saman hráefnum í tómatolíu og setjið umhverfis laxinn með skeið. Skerið gúrkurnar í langar, hálfar sneiðar og leggið í marineringuna í stutta stund, raðið ofaná laxinn í fallegan hring. Skreytið með salati og setjið að síðustu teskeið af laxahrognum ofaná salatið. Framreiðið með góðu brauði.
birtar af Auðunn Sólberg Valsson á 02:19 þann 29. sep. 2005
"Laxatartar með tómarolíu og laxahrognum"
Engin ummæli ennþá. -