4x 120 gr laxastykki salt og svartur pipar úr kvörn ólífuolía til penslunar
coriander pesto: 1 búnt ferskt coriander 1 búnt steinselja 100 gr furuhnetur 1 tsk sítrónusafi 1 msk balsamico edik salt og svartur pipar úr kvörn 75 ml ólífuolía 30 gr parmesanostur 2 saxaðir hvítlauksgeirar
Sítrónugrassósa: 2 stk sítrónugras (lemongrass) -má nota niðursoðið 50 gr saxaður charlottulaukur 100 ml hvítvín 1 tsk turmeric 100 ml fisksoð 100 ml rjómi 2 msk ólífuolía 2 msk smjör
Meðlæti: Soðnar kartöflur og salat
Aðferð: Kryddið laxinn með salti og pipar og penslið með ólífuolíu. Grillið á vel heitu grilli í 1-2 mínútur á hvorri hlið.
Pesto: Blandið öllu saman í matvinnsluvél og látið snúast í nokkra hringi. Setjið ofaná laxinn og bregðið stutta stund undir vel heitt grill.
Sósa: Skerið sítrónugrasið í litla bita og svitið í heitri olíunni ásamt lauk. Kryddið til með turmeric, salti og pipar. Hellið hvítvíni og fisksoði í pottinn og látið sjóða niður um 2/3. Setjið rjómann í og sjóðið aftur niður um helming. Hrærið köldu smjörinu saman við og látið ekki sjóða eftir það.
birtar af Auðunn Sólberg Valsson á 18:13 þann 28. sep. 2005
"Grillaður Lax með Coriander pesto"
Engin ummæli ennþá. -