800 gr Nautalundir (fjórar 200 gr steikur, skorið skáhalt í langar steikur) 1 meðal Zukkini 1 Rauð Paprika 4 þykkar Lauksneiðar (bufflaukur) 4 Stórar kartöflur 200 gr Lárperumauk 300 ml Salsasósa 200 ml Sýrður Rjómi
Kryddolía: 2 stykki rauður Chilipipar (ferskur) 200 ml Ólífuolía Sett saman í blender eða matvinnsluvél
Svartur pipar úr kvörn Salt
Aðferð: Berjið kjötið örlítið flatt með buffhamri og penslið með chiliolíunni. Skerið Zukkini, papriku í langar sneiðar og leggið á fat. Penslið með olíu. Skerið laukinn og kartöflurnar í þykkar sneiðar og penslið með olíu. Grillið kartöflurnar á snarpheitu grillinu fyrst því þær taka lengstan tíma. Setjið síðan kjötið á grillið, kryddið og penslið stöðugt með chiliolíunni á meðan steikurnar grillast. Eldunartími fer eftir smekk manna. Grillið grænmetið um leið og kjötið. Framreiðið með góðu salati, salsasósu, lárperumauki og sýrðum rjóma.
birtar af Auðunn Sólberg Valsson á 17:41 þann 28. sep. 2005
"Grillaðar Nautalundir að Mexikóskum hætti"
Engin ummæli ennþá. -